Content Preview: rss
128 days ago
Fann þessa sögu, sem ég skrifaði í Málrækt í 10 ára bekk:o) Einu sinni var ég á gangi eina nóttina. Þá sá ég draugalegt hús fyrir framan mig. Ég gékk inn í húsið og allt í einu var ég komin niður í kjallara. Stór skápur blasti við í kjallaranum. Ég opnaði skápinn, dauður maður hékk í skápnum. Ótti greip mig fyrst um sinn en svo ákvað ég að gista í húsinu og rannsaka þetta mál. Stór klukka var í húsinu. Klukkan var ellefu um kvöldið og klukkan byrjaði að slá. Ég skemmdi klukkuna svo hún myndi ekki halda fyrir mér vöku um nóttina. Klukkan var orðin tólf um miðnætti og klukkan byrjaði að slá. Kalt vatn rann milli skinns og hörunds. Hvernig fer skemmd klukka að því að slá? Ég vaknaði í rúminu mínu. Þetta hafði þá bara verið draumur. Ég fór á fætur og gáði hvað væri í póstinum. Þar var bréf handa mér, ég opnaði bréfið og í því stóð: "Skemmtilegur draumur ekki satt"? Og það var undirritað: Draugurinn í draugalega húsinu.
154 days ago
Jæja, ég var víst búin að lofa að byrja að blogga hérna aftur. Bezt að standa við það. Það hefur margt breyst í Gonzo-heimi. Ég hef búið ein núna í 16 mánuði. Á þessum tíma hafa lánin mín og afborganir af þeim hækkað, karlmenn hafa komið og farið, suma rak ég sjálf í burtu, aðrir stungu mig í bakið og fóru án aðstoðar. Ísland fór til fjandans og Kastró, kötturinn minn til 13 ára, dó. En að jákvæðari hlutum. Ég og Elísa urðum að allra beztu vinkonum og getum varla verið einn dag án hvor annarar lengur. Enda er hún að flytja inn til mín eftir nokkra daga. Við ákváðum að verða meðleigjendur, og deila þessari erfiðu lífsbaráttu, sem bara harðnar með hverjum deginum. Úpps, datt aðeins í neikvæðnina aftur, *hóst*. Ég hef ennþá örugga vinnu í Seðlabankanum og er mjög þakklát fyrir það. Ella systir hefur staðið sig eins og hetja í baráttunni við sinn sjúkdóm og hefur bara fengið góðar fréttir, og allt hefur gengið svo vel að það er bara kraftaverki líkast, hún virðist læknuð, og ...
190 days ago
Long time no write, ég hef tekið þá merkilegu (að mínu mati) ákvörðun að byrja að blogga aftur. Hvenær það byrjar eða um hvað það verður, það kemur í ljós. En ég finn það bara að sköpunarkraftinn í mér sárvantar einhverja útrás. Og eins og segir í máltækinu, " Engin er sköpunin án sáðrásar ". Jájá, ég er varla byrjuð, og ég er strax komin í MÁLKLÁM. Sem er einmitt gott dæmi um samhverfu:o) Fésbókin er klárlega aðalsökudólgur þessa blogg-hlés míns, en nú verða ermarnar sko brettar upp, og hafist handa. Aloha!
329 days ago
Nú árið er á enda..................best að blogga aðeins um það. Árið 2008 var mjög svo viðburðaríkt hjá mér, og það má eiginlega segja að fyrsta þriðjung þess hafi mér alls ekki litist á blikuna. Hvert annað áfallið skall á mann. Ég byrjaði árið eins og flestir vita að enda 11 ára sambúð. Það var hvorki gaman né auðvelt. Sem betur fer var maður ennþá hálfdofinn þegar næsta áfall kom, hún amma mín á Akureyri dó. Ég komst þó norður til að kveðja hana áður en það gerðist. Svo fór maður aftur norður í jarðaförina. 2 vikum seinna dó Amma á nesi. Ég náði ekki að kveðja hana. Hún dó 5 mínútum áður en ég mætti á staðinn. Þá brotnaði ég loksins niður. Þetta var of mikið í einu. Ég missti sem sagt þrjár af mínu uppáhaldspersónum á einum mánuði. Svo tók allt fjármálabaslið við. Ég var að reyna eignast íbúðina mína alveg sjálf, en bankinn var ekki alveg á því að leyfa mér að standast greiðslumat. Það hófst þó að lokum, eftir góða hjálp. Ég átti íbúðina mína...........alein. Og fór ...
341 days ago
Hellúúúú. Mikið að maður fer að blaðra hérna loksins eitthvað. Já, mín fór til Manchester fyrstu helgina í des og skemmti sér alveg konunglega. Eins og við var að búast. En mín nældi sér líka í svaka pest, því mér varð svo ógeðslega kalt þarna. Maður er víst svo voðalega vanur eitthvað hitaveitu-húsunum hérna á Íslandi. Ég held maður mætti vera þakklátari. En það var rosalega gaman hjá okkur Patsy, ekkert verslað svo sem, en mikið farið og skoðað, kjaftað og drukkið auðvitað. Þvílík gestrisnin alltaf sem maður fær þarna og ég er líka algjörlega að fíl´ana:o) Hehe. Takk æðislega fyrir mig! En já, ég er því miður búin að vera veik síðan:o( Hósta enn og kvefið situr sem fastast. Búin að prófa alls konar lyf, búin að fá svæsin ofnæmisviðbrögð við sumum, en hin virðast ekki virka neitt. Great! Búin að taka 8 veikindadaga í desember. Og reikna með að eyða þessu æðislega langa jólafríi í þessa sömu pest. Great! Jæja, það er samt gaman að vera til, jólin framundan ...



